MS Búðardal & Reykjavík
Nýlega voru settir upp nýir klefar fyrir blámygluosta hjá Mjólkursamsölunni í
Búðardal. Um er að ræða fimm sjálfstæða klefa sem viðhalda ákveðnu hita- og rakastigi. Klefarnir eru af gerðinni LA60 og MA60 frá Dagard. Hurðir og gluggar eru einnig frá Dagard auk ryðfrírra milliveggja í ostavinnslu. Kælibúnaður er frá Bitzer og GEA Küba en stjórnbúnaður frá Carel. Rakatæki og stýring þeirra er einnig frá Carel. Uppsetningu önnuðust Kæling ehf og Raffélagið ehf. Mjólkursamsalan í Reykjavík hefur tekið miklum breytingum undanfarið og m.a. hafa þeir bætt við kæliblásurum inná glycolkerfi hússins sem fyrir er. Tveir nýir kælar voru teknir í notkun og var ákveðið að nota GEA Küba iðnaðarkæliblásara í bæði þessi rými.